SÆÆLAAR!!!!!!
NÝ SÍÐA!!!!!!!
www.blog.central.is/thehooters
allir að kíkja á hana!!!!!!!
kveðja hootersmeð limur hehe Ernan
fimmtudagur, júlí 14, 2005
Hæhæ júllubínur :)
Vá hvað það er langt síðan maður skrifaði hérna inná og langt síðan maður hitti flestar júllur. En já ég var bara svona spá hvort það væri ekki tími komin á smá hitting hmm... Ég og Teitur erum nú að passa hús hérna í Húsahverfinu og þar sem maður á nú afmæli á sunnudag þá væri alveg tilvalið að hafa smá hooterspartý. Ég ætlaði nú ekkert að vera að halda uppá afmælið þar sem þetta er nú bara 22 ára en endilega látið vita hvernig stemmarinn er með commentum og þá getum við rifjað upp gamla tíma og djammað saman :)
Eyrún Erla tútta
JÆJA JÆJA Túttur!
eins og ég lofaði nokkrum túttum um helgina, þá hef ég útbúið nýja hooters-síðu!!!
við höfum nú talað um það lengi og nú er loksins komið að því, nýja slóðin er semsagt: www.blog.central.is/thehooters
en nú á allavega að vera auðveldara fyrir alla að setja inn myndir, tengla sem þeir vilja hafa og þess háttar!
ok er þetta ekki alveg frábært???
kv. Maggz
miðvikudagur, júlí 13, 2005
SÆÆLAAAR!!!
hey gells, ég hef reyndar ekkert að segja en mér finnst þessi síða ekkert að ganga..veit það er alltaf sama nöldrið en hvar eru þið!!!! við erum að hittast minna og núna eru fullt af ykkur stelpunum að fara út og svo áður en við vitum erum við hættar að tala saman. æi..
ohh ég er einmitt ákkurat að bíða núna eftir að ég fái plön uppí hendurnar hérna í vinnunni og það er bara leiðinlegt að bíða alltaf. En ég er komin með annað jobb í vinnunni. já og sminkið er bara svona auka. þetta sem ég er í núna er kallast aðstoðar upptökurstjóra dagskrádeildar eða eitthvað þannig skiptir engu bara gaman fyrir mig að komast í eitthvað annað og færast upp stigan í fyrirtækinu.
jæja ég ætla að halda áfram að bíða.
og já ég hlakka svo til að sjá SNOOP en hvað með ykkur..
Bestu kveðjur ÖÖrrrnnn
mánudagur, júlí 11, 2005
hi ih skvisurnar minar.... allt fint ad fretta hedan.. takk fyrir seinast.. tid sem komud.. i sing star hja Ernu :) ekkert sma gaman :) og svo lika hja Moggu lika :) ...... en hva segid tid.. hvad um sma hitting bradum. !!! hmmmhhmm ..
En svo a morgun (þridjudag) ta erum vid gellurnar i Fjölni ad fara spila i 8 - lida úrslitum i Visa bikarnum... kl 8 a Fjölnisvelli og okkur veitir sko ekki af sma Jullu stemningu :) tannig ad vona eg sjai ykkur flestar .. er tad ekki a ekki ad mæta...
en nog af rugli.... heyrymst vonandi bratt :)
EYRun huld
mánudagur, júlí 04, 2005
PARTÝ!!!
sælar stúlkur. Núna er komin tími á mig að vera með smá saumó.
þar sem kallinn minn er að fara í veiðiferð um næstu helgi var ég að spá í að hafa singstar partý. Þar sem að þetta er eiginlega eina helgin sem ég get haft saumó en víst að Magga er með kveðjuparý á laug þá verður þetta líklegast á föst. svona smá upphitun fyrir laug ;)
Það gæti verið að maður bjóði eitthverjum fleirum því það eru svo margar af okkur stelpunum úti.
vona bara að allar komi sem eru hérna á landinu.
og hey þetta er langur fyrirvari þannig ekkert bull!!!!!
kveðja Erna Ósk Brynjólfsdóttir
sunnudagur, júlí 03, 2005
Jæja, jæja stelpur!
þá er þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins búin og tókst hún bara svona rosa vel, engin alvarleg slys enn sem komið er og mun það vonandi ekki breytast með kvöldinu! Við fótboltastelpurnar byrjuðum semsagt strax eftir ömurlegan tapleik á föstudaginn með hörku-djammi heima hjá Ólöfu Daðey og Könunum. Héldum á óliver um hálf 2 og vorum til lokunnar, þá var haldið á þann miður skemmtilega stað Hverfisbarinn og vorum þar til lokunnar. Svo eftir mikla útiveru á Hverfisgötunni ákváðum við skella okkur í eftirpartý hjá Óla Inga og kærustu hans. Semsagt mikið gaman mikið fjör:) Svo var bara vaknað þremur tímum síðar og haldið af stað í þessa líka frábæru útilegu í Þjórsárdal. Þar var sko mikið drukkið, borðað, sungið og hver veit hvað fleira:) ég og Erla tókum það svo að okkur að þakka fyrir með því að næra jörðina með öllu því sem við höfðum drukkið og borðað yfir helgina;) en allavega þá var þetta bara glæsó pæsó helgi en mun sú næsta vera miklu, miklu betri! en við Úlfar ætlum að halda "kveðjupartý" á laugardaginn og er skilda að koma og drekka!
kær júllu kveðja, ykkar tútta Maggz
þriðjudagur, júní 28, 2005
hellú hellú girlys
jaeja smá info frá Barcelona. Ég er haett ad vera au pair og er ad fara ad flytja inn med 3 strákum og einni stelpu 2 mín frá skolanum og 10 mín frá Romblunni, heavy nice.
Var komin med óged ad vera svona heft eitthvad tannig ad ég bar ákvad ad leita mér ad íbúd og flyt inn á morgun, gaman gaman. Nü get ég djammad eins og ég vil án tess ad fá samviskubit yfir tví, tó ad tau voru mjog nice og allt ad og sogdu ad ég maetti alveg gera allt sem ég vildi teim vaeri alveg sama tá samt var alltaf eitthvad look dagin eftir dajmmid tid skiljid. Er ekki alveg ad fíla tad ad búa inná svona fjolskyldu. Tannig ad ég verd hér út águst allaveganna í skólanum og svo sé ég til hvort ég kem heim eda leita ad vinnu hér kemur allt saman í ljós. En annars er búid ad vera svaka stu fór sídustu helgi til Mallorca (playa de palma) hitti tar týskt fóboltalid sem ég fór svo ad djamma med og voda fjor.
Adios Eva
